Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 863/2021

Nr. 863/2021 7. júlí 2021

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 940/2018 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um vátryggingastarfsemi og vátryggingasamstæður.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1630 frá 9. september 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar málsmeðferðarreglur sem fylgja skal við beitingu á umbreytingarráðstöfuninni fyrir undireiningu hlutabréfaáhættu í samræmi við tilskipun Evrópuþings­ins og ráðsins 2009/138/EB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2018 frá 23. mars 2018, skal gilda hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 85/2018 frá 20. desember 2018, bls. 187-189. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2018 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 6 frá 30. janúar 2020, bls. 41.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 103. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, og öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 7. júlí 2021.

 

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Hjörleifur Gíslason.


B deild - Útgáfud.: 21. júlí 2021