Vallarbraut 12, deiliskipulagsbreyting. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti þann 7. janúar 2020 deiliskipulagsbreytingu fyrir Vallarbraut 12. Breytingin felst í að snúa byggingu á reit og aðkoma verði norðanmegin. Hæðir verði fjórar í stað þriggja og íbúðum fjölgað úr 9 í 15. Byggingarreitur hefur verið færður fjær lóðamörkum Móavalla 2. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Dalsbraut 8, deiliskipulagsbreyting. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur þann 7. apríl 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Dalsbraut 8. Íbúðum verður fjölgað úr 14-15 í 22. Húsið verður 3 hæðir í stað 2-3 hæða. Byggingarreitur stækkar til suðurs og nýtingarhlutfall eykst um 40 m² vegna A-rýma og um 600 m² vegna B-rýma. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Reykjanesbæ, 4. maí 2020.
Kjartan M. Kjartansson bæjarstjóri.
|