Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt eftirfarandi breytingu á deiliskipulagi:
Mosagata 9-27 (9-15) – breyting á deiliskipulagi Urriðaholts, vesturhluti. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðin verði sameinuð í eina lóð. Gert er ráð fyrir sameiginlegri bílgeymslu á lóð. Fjölbýlishúsum á lóð verði snúið og svalagangar verði heimilaðir á garðhlið. Fallið er frá hugmynd um parhús mót Mosagötu en íbúðarhluti færður að Mosagötu. Íbúðum fjölgar um tvær.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Garðabæ, 31. ágúst 2017.
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri.
|