1. gr.
Frá 8. nóvember 2019 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði út af Austurlandi, miðsvæði, sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 64°40,00 N – 13°00,00 V
- 64°40,00 N – 15°00,00 V
- 65°00,00 N – 15°00,00 V
- 65°00,00 N – 13°00,00 V
- 64°40,00 N – 13°00,00 V
2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2020.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. nóvember 2019.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
|