Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 30/2022

Nr. 30/2022 13. desember 2022

AUGLÝSING
um samkomulag um þátttöku í Evrópustofnunni um rekstur stórra upplýsingakerfa á svæði frelsis, öryggis og réttlætis.

Hinn 7. nóvember 2022 var aðalframkvæmdastjóra ráðs Evrópusambandsins afhent staðfestingar­skjal Íslands vegna samkomulags milli Evrópusambandsins annars vegar og Konungsríkisins Noregs, lýðveldisins Íslands, svissneska ríkjasambandsins og Furstadæmisins Liechtenstein hins vegar um þátttöku þessara ríkja í Evrópustofnuninni um rekstur stórra upplýsingatæknikerfa á svæði frelsis, öryggis og réttlætis, sem gert var í Brussel 8. nóvember 2018. Samkomulagið öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 1. desember 2022.

Samkomulagið er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Utanríkisráðuneytinu, 13. desember 2022.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 22. febrúar 2023