1. gr.
Stjórn sjóðsins hefur samþykkt eftirfarandi breytingu á skipulagsskrá sjóðsins:
8. gr. skipulagsskrárinnar verði svohljóðandi:
Styrkir úr sjóðnum mega eigi nema meira en kr. 500.000 og skal þessi upphæð taka mið af breytingum á vísitölu neysluverðs. Óheimilt er að veita lán úr sjóðnum eða veðsetja hann. Stjórn sjóðsins ákveður um úthlutanir úr sjóðnum og getur hún leitað ábendinga frá sérfræðingum í taugasjúkdómum á Barnaspítala Hringsins. Úthluta skal úr sjóðnum árlega nema stjórn sjóðsins ákveði annað. Miðað skal við að úthlutun eigi sér stað á fæðingardegi Helenu 22. febrúar.
2. gr.
Ofangreind breyting á skipulagsskrá fyrir Rannsóknarsjóð til minningar um Helenu Matthíasdóttur staðfestist hér með samkvæmt lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
F.h. sýslumannsins á Norðurlandi vestra, 24. maí 2019,
Björn Ingi Óskarsson.
Auður Steingrímsdóttir.
|