Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 501/2023

Nr. 501/2023 8. maí 2023

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 905/2021 um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.

1. gr.

Á eftir 2. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

Ef fyrir liggur samningur um skipta búsetu barns, sbr. 3. mgr. 32. gr. barnalaga, nr. 76/2003, og barnið er hreyfihamlað og nýtur umönnunargreiðslna er heimilt að skipta uppbót eða styrk til kaupa á bifreið jafnt milli foreldra, ef önnur skilyrði reglugerðar þessarar eru uppfyllt.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. gr., sbr. 2. mgr. 14. gr., laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, og 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breyt­ingum, öðlast þegar gildi og gildir um umsóknir sem berast frá 1. janúar 2022.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 8. maí 2023.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 26. maí 2023