Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 7/2023

Nr. 7/2023 8. mars 2023

AUGLÝSING
um innleiðingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2504 um breytingu á III. og V. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum lagarafurðum og mikið unnum afurðum úr dýraríkinu inn í Sambandið og fyrirmynd að eigin staðfestingu vegna innflutnings á tilteknum samsettum afurðum inn í Sambandið.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 262/2023 um (5.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrir­myndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/68/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/779/EB og 2007/240/EB, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2504 frá 19. desember 2022 um breytingu á III. og V. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum og opinberum vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum lagarafurðum og mikið unnum afurðum úr dýraríkinu inn í Sambandið og fyrirmynd að eigin staðfestingu vegna innflutnings á tilteknum samsettum afurðum inn í Sambandið. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

 

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 29. gr. b laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Matvælaráðuneytinu, 8. mars 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Margrét Björk Sigurðardóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 16. mars 2023