Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
1142/2021

Nr. 1142/2021 23. september 2021

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps, þéttbýlið að Borg norðan Biskupstungnabrautar.

Skipulagsstofnun staðfesti 23. september 2021 breytingu á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafn­ings­hrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 1. september 2021.
Í breytingunni felst að íbúðarbyggð (ÍB2) í þéttbýlinu að Borg er breytt í útivistarsvæði (Ú7) og landbúnaðarsvæði. Blönduð byggð (A1/ÍB3) fellur að hluta undir ÍB1 en hluti svæðis verður athafna­­svæði (A1). ÍB4 stækkar, skilgreint er nýtt afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF1) fyrir tjald­svæðið og sett skýrari skipulagsákvæði fyrir landnotkunarflokka. Legu fyrirhugaðra gatna innan þétt­býlisins er breytt.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 23. september 2021.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 8. október 2021