Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Efsti-Dalur 2. Deiliskipulagsbreytingin varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi að Efsta-Dal 2, L167631. Í breytingunni felst að núverandi byggingarreit G-1 er skipt upp í tvennt og stofnaðar verði 2 lóðir. Lóðirnar fá heitin Efsti-Dalur 2G og Efsti-Dalur 2H. Samþykkt í sveitarstjórn 29. júní 2022.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 2. september 2022.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|