Deiliskipulagsbreyting, Lækjarvellir. Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á fundi sínum 29. október 2020 breytingu á deiliskipulagi fyrir Lækjarvelli. Í breytingunni felst að lóðir 2a, 2b og 2c eru endurskipulagðar þannig að eftir standa tvær lóðir sem hljóta staðvísana 2a og 2b. Um lóðirnar gilda almennir skilmálar deiliskipulags. Breytingin telst óveruleg með tilliti til gr. 5.8.2. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 43. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin öðlast þegar gildi.
F.h. Hörgársveitar, 16. febrúar 2021,
Vigfús Björnsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
|