Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 36/2022

Nr. 36/2022 26. ágúst 2022

AUGLÝSING
um mansalsbókun við Palermó-samninginn.

Hinn 22. júní 2010 var aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna afhent fullgildingarskjal Íslands vegna bókunar um að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal, einkum kvenna og barna, sem gerð var í New York 15. nóvember 2000 og er viðbót við samning Sameinuðu þjóðanna gegn fjölþjóðlegri, skipulagðri glæpastarfsemi (Palermó-samninginn), sem gerður var sama dag. Alþingi hafði hinn 19. maí 2010, með þingsályktun nr. 15/138, heimilað ríkisstjórninni að fullgilda bókunina.

Bókunin öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 22. júlí 2010 og er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Utanríkisráðuneytinu, 26. ágúst 2022.

 

F. h. r.

Martin Eyjólfsson.

Anna Jóhannsdóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 15. mars 2023