Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1311/2018

Nr. 1311/2018 18. desember 2018

GJALDSKRÁ
fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Stykkishólmsbæ.

1. gr.

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Stykkishólmsbæ og hreinsun rotþróa í Stykkishólmsbæ skv. gjaldskrá þessari og samþykkt nr. 181/2018 um fráveitur í Stykkishólmsbæ.

2. gr.

Stofngjald fyrir tengingu og lagningu frárennslislagna við holræsakerfi sveitarfélagsins skal vera:

  Fyrir einbýlishús 56.094 kr. á hvert hús
  Fyrir fjölbýlishús 18.695 kr. á hverja íbúð
  Fyrir annað húsnæði       43 kr. á hvern fermetra í húsnæðinu að 4.000 fermetrum
          22 kr. á hvern fermetra umfram 4.000 fermetra

Ef um tvöfalt frárennsliskerfi er að ræða skulu ofangreindar fjárhæðir margfaldaðar með tveimur.

3. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Fráveitugjald skal nema 0,20% af álagningarstofni íbúðarhúsnæðis og 0,24% af álagningarstofni atvinnuhúsnæðis. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

4. gr.

Rotþróargjald fyrir hverja rotþró skal vera eftirfarandi árlega:

  Stærð í lítrum    kr.
  0-2.000   7.766
  2.001-4.000   9.744
  4.001-6.000 11.093
  6.001-8.000 13.710
  8.001-10.000 18.128
  Rotþró stærri 10.000   5.180 pr. umframrúmmetra

Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 10 metra.

Fyrir hverja 10 metra umfram það skal greiða kr. 3.090.

5. gr.

Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

6. gr.

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt af bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar 13. desember 2018 staðfestist hér með samkvæmt 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009 og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 til að öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gjaldskrá nr. 290/2018.

Stykkishólmi, 18. desember 2018.

Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 8. janúar 2019