Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 462/2021

Nr. 462/2021 21. apríl 2021

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 um smitandi dýrasjúkdóma (dýraheilbrigði).

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar, öðlast eftir­taldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 frá 9. mars 2016 um smitandi dýra­sjúkdóma og um breytingu og niðurfellingu á tilteknum gerðum á sviði dýraheilbrigðis („lög um dýraheilbrigði“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 179/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 31. mars 2021, bls. 164.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1629 frá 25. júlí 2018 um breyt­ingu á skránni yfir sjúkdóma sem sett var fram í II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 um smitandi dýrasjúkdóma og um breytingu og niðurfellingu á tilteknum gerðum á sviði dýraheilbrigðis („lög um dýraheilbrigði“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2020, frá 11. desember 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 31. mars 2021, bls. 372.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/689 frá 17. desember 2019 um viðbót við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar reglur um eftirlit, útrýmingaráætlanir og sjúkdómalausa stöðu með tilliti til tiltekinna skráðra og nýtil­kom­inna sjúkdóma. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 4/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, frá 15. apríl 2021, bls. 1.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/691 frá 30. janúar 2020 um við­bót við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar reglur um lagar­eldisstöðvar og flutningsaðila fyrir lagardýr. Reglugerðin var felld inn í EES-samn­inginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 31. mars 2021, bls. 531.
  5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/990 frá 28. apríl 2020 um viðbót við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar dýraheilbrigðis­kröfur og vottunarkröfur vegna tilflutninga á lagardýrum og lagardýraafurðum innan Sam­bands­ins. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 31. mars 2021, bls. 565.

Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2020 og nr. 4/2021.

 

2. gr.

Reglugerð þessi fjallar um heilbrigði dýra og gildir um öll stig framleiðslu, vinnslu, dreifingu og innflutning á afurðum úr dýraríkinu og afurðum úr þeim sem ætlaðar eru til neyslu, merkingar búfjár, rekjanleika afurða og tilkynningaskylda sjúkdóma með þeim takmörkunum sem leiðir af I. kafla I. viðauka EES-samningsins, og lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

 

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 93/1995, um matvæli, lög nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lög nr. 71/2008, um fiskeldi.

 

4. gr.

Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, laga nr. 93/1995, um matvæli, laga nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, laga nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum, laga nr. 71/2008, um fiskeldi og laga nr. 38/2013, um búfjárhald.

 

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisk­sjúkdómum, lögum nr. 71/2008, um fiskeldi og lögum nr. 38/2013, um búfjárhald öll með síðari breyt­ingum.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi og á sama tíma falla brott reglugerðir nr. 1254/2008, nr. 346/2012 og nr. 522/2012.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. apríl 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. apríl 2021