Skipulagsstjóri Garðabæjar samþykkti á afgreiðslufundi 23. ágúst 2021 í samræmi við viðauka við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017 eftirfarandi:
Sunnuflöt 24, óveruleg breyting á deiliskipulagi Flata. Breytingartillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til vesturs fyrir opið skýli í sömu hæð og neðri hæð hússins.
Skipulagsstjóri Garðabæjar samþykkti á afgreiðslufundi 24. september 2021 í samræmi við viðauka við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017 eftirfarandi:
Borgarás 10, óveruleg breyting á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis). Breytingartillagan gerir ráð fyrir því að heimiluð verði 4 bílastæði á framlóð Borgaráss 10.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Garðabæ, 24. nóvember 2021.
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri.
|