Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 873/2019

Nr. 873/2019 16. september 2019

AUGLÝSING
um umferð í Reykjavík.

Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgar­svæðinu ákveðið eftirfarandi:

  1. Að gönguþverun yfir Fiskislóð norðan hringtorgs við Ánanaust verði merkt sem gangbraut.
    Gangbraut skal merkt beggja vegna vegar með umferðarmerkinu D02.11 og yfirborð vegar með merkingunni M13 samkvæmt reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra.
  2. Að banna lagningu ökutækja við austurkant Auðarstrætis og við norðurkant Bollagötu frá Auðarstræti að Gunnarsbraut.
    Stöðubann skal merkt með umferðarmerkinu B21.11 samkvæmt reglugerð um umferðar­merki og notkun þeirra.
  3. Að afmarkað verði bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða við Háteigsveg 6.
    Bílastæði er merkt með umferðarmerkinu D01.21 samkvæmt reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra.
  4. Að afmarkað verði bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða við Hátún 39.
    Bílastæði er merkt með umferðarmerkinu D01.21 samkvæmt reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra.
  5. Að hámarkshraði á eftirtöldum götum verði 30 km/klst.:
      Arnarhlíð
      Fálkahlíð
      Haukahlíð
      Hlíðarenda
      Smyrilshlíð
      Valshlíð
    Boð um hámarkshraða skal merkt samkvæmt reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 16. september 2019.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 4. október 2019