Garður í Hegranesi, Hegranesþingstaður. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti þann 12. desember 2016 deiliskipulag fyrir hinn forna Hegranesþingstað í landi Garðs í Hegranesi. Deiliskipulagið nær yfir hinn forna Hegranesþingstað og þar er gert ráð fyrir áningarstað og gönguleið að útsýnisstað yfir minjasvæðið. Deiliskipulaginu er ætlað að stuðla að verndun og varðveislu minja á svæðinu og gera þær aðgengilegri fyrir gesti sem koma á minjasvæðið. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Sauðárkróki, 28. ágúst 2017.
Jón Örn Berndsen, skipulags- og byggingarfulltrúi.
|