Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 59/2020

Nr. 59/2020 22. júní 2020

LÖG
um breytingu á lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015 (framlagning mála).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

 

1. gr.

    Í stað ártalsins „2019“ í ákvæði til bráðabirgða III í lögunum kemur: 2020.

 

2. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

    Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 10. gr. skulu tillaga til þingsályktunar um fjár­mála­áætlun fyrir árin 2021–2025 og tillaga til þingsályktunar um breytingar á fjármálastefnu fyrir árin 2018–2022 lagðar fram eigi síðar en á samkomudegi reglulegs Alþingis haustið 2020.

 

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

Gjört á Bessastöðum, 22. júní 2020.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.


A deild - Útgáfud.: 25. júní 2020