Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 324/2019

Nr. 324/2019 25. mars 2019

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulag, Sólbrekka, frístundabyggð í landi Syðri-Brúar.
Deiliskipulagið nær til 40 lóða á 35 ha frístundasvæði, Sólbrekku, í landi Syðri-Brúar. Á hverri lóð er heimilað að reisa þrjú hús, eitt sumarhús, eitt gestahús og eitt geymslu/smáhýsi. Samanlagt byggingarmagn á hverri lóð má vera allt að 200 m², þar af má gestahús vera allt að 40 m² og geymsla/smáhýsi allt að 20 m². Öll hús skulu vera á einni hæð, þó er heimild fyrir svefnlofti í sumarhúsinu. Hámarkshæð sumarhúsa í mæni er 6 m og 4,5 m í gestahúsi.
Samþykkt í sveitarstjórn 3. október 2018.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 25. mars 2019.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Rúnar Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 8. apríl 2019