Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1029/2021

Nr. 1029/2021 31. ágúst 2021

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs vegna Davíðsstaða, Múlaþingi.

Skipulagsstofnun staðfesti 31. ágúst 2021 breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn Múlaþings 6. júlí 2021.
Í breytingunni felst að frístundabyggð (F60) að Hleinagarði II er felld niður. Stærstur hluti svæðisins er þess í stað skilgreindur sem landbúnaðarsvæði þar sem áform eru um skógrækt en einnig eru skilgreind tvö verslunar- og þjónustusvæði (V36 og V37). Heiti jarðarinnar hefur verið breytt í Davíðsstaði.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 31. ágúst 2021.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 14. september 2021