Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem hér segir:
Asparlundur 11. Breytingin felst í að í stað 200 m² íbúðarhúss (1 hæð og ris) verður heimilt að reisa allt að 330 m² parhús á einni hæð. Byggingarreitur verður dreginn inn vestanmegin um 2 m og stækkaður til norðurs um 2 m. Nýtingarhlutfall fer úr 0,19 í 0,32.
Ofangreind breyting hefur hlotið meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 8. ágúst 2019,
Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.
|