Skipulagsstofnun staðfesti 5. febrúar 2021 breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. apríl 2020. Í breytingunni felst að skilgreint er efnistökusvæði að Tréstöðum/Hlöðum og skógræktarsvæði í landi Engjamýrar, Geirhildargarða og Grjótgarða, ákvæðum um efnistöku í Hörgá er breytt og reiðleiðir eru færðar á tveimur svæðum. Skilgreind er stofnlögn fráveitu frá Lónsbakka að sveitarfélagamörkum við Akureyri. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 5. febrúar 2021.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
|