Eftirtaldar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sem teknar voru með stjórnskipulegum fyrirvara samkvæmt 103. gr. samningsins á árunum 2003 og 2004, hafa öðlast gildi á árinu 2006, sbr. auglýsingar í C-deild Stjórnartíðinda nr. 73/2004 og 25/2005.Ákvarðanirnar og þær EB-gerðir sem vísað er til í þeim hafa birst í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, en sú birting er jafngild birtingu í Stjórnartíðindum, sbr. 4. gr. laga um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993, sbr. 1. gr. laga nr. 91/1994.
Gerð er grein fyrir efni ákvarðananna og gildistöku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 29. desember 2006.
Geir H. Haarde.
Gunnar Snorri Gunnarsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|