Nýtt deiliskipulag fyrir Ásland 4. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum 4. maí 2022 nýtt deiliskipulagi fyrir Ásland 4. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir blandaðri lágreistri byggð sérbýla og fjölbýla. Tillagan var auglýst tímabilið 25. febrúar 2022-12. apríl 2022. Gerðar voru breytingar á skipulagsmörkum aðliggjandi deiliskipulagsáætlana vegna skörunar.
Nýtt deiliskipulag fyrir Áshamar 1, þróunarreitur 4A í Hamranesi. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulags- og byggingarráð á fundi sínum 1. mars 2022 deiliskipulag fyrir reit 4A, við Áshamar 1 í Hamranesi. Á deiliskipulagsreitnum, sem úthlutað var sem þróunarreit er gert ráð fyrir byggingarreit fyrir tvö sex hæða fjölbýlishús með 97 íbúðum einnig er heimilt að byggja 250 m2 sameiginlegt garðhýsi á lóðinni. Gert er ráð fyrir bílastæðum á lóðinni.
Uppdrættir ásamt greinargerðum og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagstillögurnar öðlast þegar gildi.
Hafnarfirði, 25. júlí 2022.
Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi.
|