Fyrir þjónustu sem byggingarfulltrúinn í Reykjavík innir af hendi skal innheimta gjöld sem hér segir:
1. gr.
Úttektir samkvæmt ákvæðum byggingarreglugerðar nr. 112/2012.
Áfangaúttekt |
13.200 kr. |
Stöðuúttekt |
23.100 kr. |
Lokaúttekt: |
|
a) |
Lítið umfang, s.s. minniháttar breytingar á mannvirki og lóð með breytingum á útliti eða fyrirkomulagi, svalaskýli, kvistir, bílskúr, klæðingar húss o.þ.h. |
26.300 kr. |
b) |
Meðal umfang, s.s. minni viðbygging eða nýbygging einbýlis, par- og raðhúss og minni fjölbýlishúss eða breytingar á fyrirkomulagi |
46.100 kr. |
c) |
Mikið umfang, s.s. nýbygging stærri mannvirkja, umfangsmeiri breytingar á fyrirkomulagi |
65.800 kr. |
Úrtaksskoðun vegna áfangaúttekta |
13.200 kr. |
Úttekt byggingarstjóraskipta |
26.300 kr. |
Íbúðarskoðun |
26.300 kr. |
2. gr.
Útgáfa vottorða.
Fokheldisvottorð |
32.900 kr. |
Vottorð um stöðuúttekt |
23.100 kr. |
Lokaúttektarvottorð |
23.100 kr. |
Stöðuleyfi |
21.100 kr. |
3. gr.
Skoðunargjöld vegna umsóknar og yfirferðar aðaluppdrátta.
Lágmarksgjald við móttöku umsóknar |
13.200 kr. |
Hver aðaluppdráttur með umsókn: |
|
a) |
Lítið umfang, s.s. minniháttar breytingar á mannvirki og lóð með breytingum á útliti eða fyrirkomulagi, svalaskýli, svalir, kvistir, klæðingar húss o.þ.h. |
3.300 kr. |
b) |
Meðal umfang, s.s. minni viðbygging eða nýbygging einbýlis, par- og raðhúss og minni fjölbýlishúss ásamt skráningartöflu eða breytingar á fyrirkomulagi |
6.600 kr. |
c) |
Mikið umfang, s.s. nýbygging stærri mannvirkja, umfangsmeiri breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsa eða stærri framkvæmdir sem krefjast einnig skoðunar skipulagsfulltrúa enda falli framkvæmd ekki undir a- eða b-lið |
13.200 kr. |
Endurumsókn útrunnins byggingarleyfis |
13.200 kr. |
Aukagjald fyrir hverja þriðju umfjöllun |
13.200 kr. |
4. gr.
Skoðunargjöld vegna yfirferðar séruppdrátta.
Einbýlis, par- og raðhús og fjölbýlishús allt að 2.000 m³ |
98.800 kr. |
Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús allt að 2.000 m³ |
138.300 kr. |
Af hverjum 1.000 m³ byggingar umfram 2.000 m³: |
|
a) |
Einföld bygging, s.s. skemmur, skýli, lager, íþróttahús, gripahús o.þ.h. |
19.800 kr. |
b) |
Hefðbundin bygging, s.s. verslun og skrifstofur, fjölbýlishús, hótel o.þ.h. |
32.900 kr. |
c) |
Sérhæfð bygging s.s. heilsuverndarhús, menningar- eða rannsóknarhús o.þ.h. |
46.100 kr. |
Aðrar minni byggingar, s.s. viðbygging, bílgeymsla, anddyri, sólstofa o.fl. |
32.900 kr. |
Umfangslitlar breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis |
52.700 kr. |
Umfangsmiklar breytingar á innra skipulagi atvinnuhúsnæðis |
105.300 kr. |
Breytingar á innra skipulagi sérhúss, klæðning húss, svalaskýli, lóð o.fl. |
19.800 kr. |
5. gr.
Skoðunargjöld vegna yfirlesturs eignaskiptayfirlýsingar.
Eignaskiptayfirlýsing: |
a) |
2-5 eignir |
39.500 kr. |
b) |
5-15 eignir |
52.700 kr. |
c) |
15-50 eignir |
65.800 kr. |
d) |
50 eignir og fleiri |
79.000 kr. |
Aukagjald fyrir hvern þriðja yfirlestur |
13.200 kr. |
6. gr.
Skoðunargjöld vegna yfirferðar raflagnauppdrátta.
Íbúðarhúsnæði: |
|
Einbýlis, par- og raðhús 1 x 63A |
17.800 kr. |
Fjölbýlishús með allt að 10 íbúðum: |
|
Heimtaug 3 x 63A, grunngjald |
17.800 kr. |
Á hverja íbúð |
940 kr. |
Stærri fjölbýlishús: |
|
Heimtaug 3 x 100-200A, grunngjald |
17.800 kr. |
Á hverja íbúð |
2.250 kr. |
Atvinnuhúsnæði: |
|
Heimtaug 3 x 63A |
26.300 kr. |
Heimtaug 3 x 100-200A |
70.600 kr. |
Heimtaug 3 x 315A og stærri |
117.700 kr. |
7. gr.
Sé hönnun mannvirkis sérstaklega vandasöm og/eða umfangsmikil getur byggingarfulltrúi við meðferð byggingarleyfisumsóknar ákveðið að skoðunarstofa annist yfirferð hönnunargagna og úttektir á kostnað eiganda vegna framkvæmdar í heild eða að hluta, sbr. ákvæði í gr. 3.3.1 og 3.3.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
8. gr.
Gjaldskrá þessi, sem er sett með heimild í 51.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 með síðari breytingum var staðfest í borgarstjórn Reykjavíkur 6. september 2022 og tekur gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1550/2021.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 12. september 2022.
Dagur B. Eggertsson.
|