Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1122/2020

Nr. 1122/2020 5. nóvember 2020

GJALDSKRÁ
fyrir gæðamat á æðardúni.

1. gr.

Dúnmatsmenn skulu fá greidda þóknun fyrir gæðamat á æðardúni sem hér segir:

Grunngjald fyrir hverja heimsókn/útkall kr. 6.970.
Auk grunngjalds reiknast kr. 328 fyrir hvert metið kíló af fullhreinsuðum æðardúni.

 

2. gr.

Þurfi dúnmatsmenn að aka sérstaklega á matsstað, skulu þeim greiddir aksturspeningar í sam­ræmi við auglýsingu ferðakostnaðarnefndar nr. 1/2020, um akstursgjald ríkisstarfsmanna, með síðari breyt­ingum.

 

3. gr.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 3. gr. laga um gæðamat á æðardúni nr. 52/2005 og öðlast þegar gildi.

Við gildistöku þessarar gjaldskrár fellur úr gildi gjaldskrá fyrir gæðamat á æðardúni nr. 1064/2017.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. nóvember 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.


B deild - Útgáfud.: 19. nóvember 2020