Skipulags- og umferðarnefnd og bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar hafa, í samræmi við 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og að fengnu samþykki lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, ákveðið eftirfarandi fyrir hönd Seltjarnarnesbæjar:
- Að hámarkshraði á Lindarbraut verði 40 km/klst.
- Að hámarkshraði á Nesvegi, milli Suðurstrandar og Granaskjóls/Sörlaskjóls, verði 40 km/klst.
Ofangreint sé merkt með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingum þar sem það á við, í samræmi við reglugerð nr. 289/1995 um umferðarmerki og notkun þeirra, með síðari breytingum.
Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.
Seltjarnarnesi, 1. júlí 2021.
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri.
|