Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1369/2019

Nr. 1369/2019 12. desember 2019

GJALDSKRÁ
fyrir hunda- og kattahald í Rangárþingi ytra.

1. gr.

a) Gjald fyrir að halda hund, sbr. 1. lið 2. gr. samþykktar um hunda- og kattahald í Rangárþingi ytra, nr. 632/2012, skal vera kr. 7.549. Gjalddagi er 1. mars og eindagi 31. mars vegna hunda sem eru á skrá um áramót, annars er 30 daga gjald­frestur.
b) Kostnaður vegna handsömunar hunda sem teknir eru lausir skal greiddur af hlutaðeigandi leyfis­hafa eða umráðamanni hunds sé um leyfislausa hunda að ræða. Sá kostnaður greiðist með hand­sömunargjaldi sem er eftirfarandi:
    Í fyrsta sinn   kr. 11.324
    Í annað sinn   kr. 16.358
    Í þriðja sinn   kr. 21.391
c) Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu.
d) Hafi eigandi skráðs hunds lokið grunnnámskeiði í hundauppeldi viðurkenndu af sveitarstjórn Rangárþings ytra er heimilt að veita allt að 25% afslátt af gjöldum samkvæmt a- og b-lið gjald­skrár þessarar eftir nánari reglum sem sveitarstjórn setur. Sveitarstjórn getur sett reglur um afsláttarkjör fyrir hundaeigendur sem hafa í hvívetna fullnægt ákvæðum samþykktar um hunda­hald í ákveðinn árafjölda eftir nánari ákvörðun sveitarstjóra.

2. gr.

a) Þeir sem fá heimild til að halda kött, sbr. samþykkt um hunda- og kattahald í Rangárþingi ytra skulu greiða fyrir það skráningargjald kr. 2.264 sem rennur í sveitarsjóð. Er gjaldinu ætlað að standa undir kostnaði við framkvæmd fyrrgreindrar samþykktar sbr. 6. gr. hennar.
b) Föngunargjald skv. 14. gr. sömu samþykktar skal vera kr. 2.516 í fyrsta skipti en síðan hækkar það í kr. 5.033 ef til föngunar kemur aftur innan 6 mánaða frá fyrri föngun. Að auki skal umráða­maður kattar greiða þann kostnað sem til fellur svo sem dvalar- og geymslu­kostnað. Óskráða ketti má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu, greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.

3. gr.

Ofangreind gjaldskrá, sem samþykkt er af sveitarstjórn Rangárþings ytra með vísun til heimildar í samþykkt um hunda- og kattahald í Rangárþingi ytra, nr. 632/2012, staðfestist hér með, sam­kvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi. Jafn­framt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1370/2018 um sama efni.

Samþykkt á fundi sveitarstjórnar, 12. desember 2019.

Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 13. janúar 2020