Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt deiliskipulagsbreytingar sem hér segir:
Engjavegur 6. Breytingin varðar aðeins lóðina Engjaveg 6, L177032, og felur í sér stækkun á byggingarreit og breytingar á skilmálum um stærðir í töflu greinargerðar. Heimilt verður að reisa 130 m² nýbyggingu innan lóðar í stað 50 m² viðbyggingar.
Vogatunga 18-24. Breytingin varðar raðhús í Vogatungu og land Mosfellsbæjar. Lóðir húsa eru stækkaðar til vesturs þar sem spilda úr landi Mosfellsbæjar, milli húsa og götu, er sameinuð lóðunum. Skilmálar deiliskipulags verða óbreyttir.
Ofangreindar breytingar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 25. júní 2020,
Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi.
|