Vatnskot 2. Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti þann 8. nóvember 2018, tillögu að deiliskipulagi fyrir Vatnskot 2. Tillagan tekur til um 500 m² spildu sem tengist Ásvegi (25) þar sem gert verði ráð fyrir byggingu tveggja 32 m² gestahúsa. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hellu, 27. júní 2019.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
|