Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 110/2019

Nr. 110/2019 6. september 2019

FORSETAÚRSKURÐUR
um breytingu á forsetaúrskurði nr. 120/2018, um skiptingu starfa ráðherra, sbr. forsetaúrskurð um breytingar á þeim úrskurði nr. 17/2019.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands, forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti og forseta­úrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands er hér með gerð eftirfarandi breyting á forsetaúrskurði nr. 120/2018, um skiptingu starfa ráðherra, sbr. forseta­úrskurð um breytingu á þeim úrskurði nr. 17/2019:

1. gr.

3. gr. úrskurðarins orðast svo ásamt fyrirsögn:

Dómsmálaráðuneyti.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir dómsmálaráðuneytið skv. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið dómsmálaráðherra.

2. gr.

Forsetaúrskurður þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 6. september 2019.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Katrín Jakobsdóttir.


A deild - Útgáfud.: 6. september 2019