Breyting á deiliskipulagi Áslands 3, nú Ásland 4, vegna Skógaráss 5. Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkti 15. febrúar 2023 breytingu á deiliskipulagi vegna Skógaráss 5 þar sem heimiluð er breyting á nýtingarhlutfalli lóðarinnar úr 0,45 í 0,50. Samþykki nágranna liggur fyrir.
Breyting á deiliskipulagi Ásvallabrautar og Áslands, 3. áfanga. Á fundi skipulags- og byggingarráðs 26. apríl 2022 samþykkti ráðið samhliða samþykkt á 4. áfanga Áslands breytingu á deiliskipulagi Ásvallabrautar og deiliskipulagi 3. áfanga Áslands. Breytingarnar á deiliskipulagi Ásvallabrautar og 3. áfanga Áslands eru vegna breytinga á skipulagsmörkum þar sem þau skarast við skipulagsmörk nýs skipulags fyrir Ásland, 4. áfanga. Samþykkt skipulags- og byggingarráðs frá 26. apríl 2022 var staðfest í bæjarstjórn 4. maí 2022.
Breyting á deiliskipulagi Skarðshlíðar, 3. áfanga, vegna Tinnuskarðs 4. Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkti í dag, 1. mars 2023, breytingu á deiliskipulagi vegna Tinnuskarðs 4 þar sem heimilað var að fjölga íbúðum og bílastæðum úr fjórum í fimm og gerð var lítils háttar breyting á lögun byggingarreits.
Uppdrættir ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið meðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Deiliskipulagstillögurnar öðlast þegar gildi.
Hafnarfirði, 1. mars 2023.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Anna Margrét Tómasdóttir verkefnastjóri.
|