Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkti 26. mars 2019 óverulegar breytingar á deiliskipulaginu miðbær – hafnarsvæði og deiliskipulagi gamla bæjarins í Grindavík. Í breytingunni felst að lóð Verbrautar 1 er færð inn á skipulagið miðbær – hafnarsvæði, skilgreindir eru byggingarskilmálar fyrir hana og felldur út byggingarreitur á Verbraut 5. Deiliskipulagsbreytingarnar hafa hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grindavíkurbæ, 13. maí 2019.
Sigurður Ólafsson skipulagsfulltrúi.
|