Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
Deiliskipulagsbreyting, Kiðjaberg, lóð 9, L204189. Óveruleg breyting er gerð á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Kiðjabergs. Breytingin felur í sér stækkun á byggingarreit innan lóðar Kiðjabergs 9, L204189. Samþykkt í sveitarstjórn 7. apríl 2021.
Deiliskipulagsbreyting, Kiðjaberg 27, Hlíð, L227823 og Kiðjaberg 28, Hlíð, L227824. Óveruleg breyting er gerð á deiliskipulagi að Kiðjabergi. Breytingin felur í sér breytingu á stærð lóðar 27 úr 8.250 m² í 5.000 m². Stærð lóðar 28 breytist í samræmi við breytta stærð lóðar 27 og verður 11.500 m² að breytingu lokinni. Umrædd breyting tekur eingöngu til breyttra stærða á lóðum. Samþykkt í sveitarstjórn 5. maí 2021.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 21. maí 2021.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|