1. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir, sbr. fylgiskjal 1, sem tekin var upp í EES-samningin með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 187/2021 frá 30. júní 2021 og talin er upp í 10. tölulið V. viðauka (frelsi launþega til flutninga) og 9. tölulið VIII. viðauka (staðfesturéttur) við EES-samninginn.
2. gr.
Sóttvarnalæknir gefur út eftirfarandi samræmd vottorð í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir:
- Vottorð sem staðfestir að handhafi þess hafi fengið COVID-19 bóluefni innan Evrópska efnahagssvæðisins eða fengið að öðru leyti bólusetningu í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 („bólusetningarvottorð“),
- vottorð um niðurstöðu, tegund og dagsetningu NAAT-prófs eða skyndiprófs sem er að finna í sameiginlegu og uppfærðu skránni yfir skyndipróf vegna COVID-19 sem komið var á fót á grundvelli tilmæla ráðsins 2021/C 24/01 („prófvottorð“), eða
- vottorð sem staðfestir að handhafi þess hafi náð bata eftir SARS-CoV-2 sýkingu í kjölfar jákvæðs NAAT-prófs eða hafi staðfestingu á ónæmissvörun við SARS-CoV-2 með sermi- eða mótefnaprófun, ásamt dagsetningu fyrsta jákvæða NAAT-prófsins eða dagsetningu sermifræðilegrar prófunar fyrir mótefnum gegn SARS-CoV-2 („vottorð um bata“).
3. gr.
Vottorð sem gefið er út á grundvelli 2. gr. skal vera í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/953 um ramma um útgáfu, sannprófun og viðurkenningu samvirkandi vottorða um bólusetningu, próf og bata til að auðvelda frjálsa för á meðan COVID-19 heimsfaraldurinn stendur yfir.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Reglugerð þessi fellur úr gildi 1. júlí 2022.
Heilbrigðisráðuneytinu, 30. júní 2021.
F. h. r.
Runólfur Birgir Leifsson.
Rögnvaldur G. Gunnarsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|