Deiliskipulag Skarðshlíðar, 3. áfanga. Tinnuskarð 3. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi á fundi sínum 23. desember 2020 breytingu á deiliskipulagi Skarðshlíðar, 3. áfanga. Í breytingunni felst að byggingarreitur Tinnuskarðs 3 er stækkaður um 1 m til norðvesturs. Bílastæðum fjölgar úr 2 í 3 innan lóðar. Að öðru leyti gilda skilmálar deiliskipulagsins.
Deiliskipulag Hraun-vestur, Gjótur. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum þann 14. október 2020 deiliskipulag fyrir Hraun-vestur, Gjótur. Í deiliskipulaginu felst að heimiluð verði uppbygging á reit sem afmarkast af Reykjavíkurvegi 60-62 og Hjallahrauni 2, 4 og 4a. Gert er ráð fyrir byggingu íbúðahúsnæðis auk atvinnu- og þjónustuhúsnæðis á reitnum í samræmi við deiliskipulagið.
Deiliskipulagsbreytingarnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
Hafnarfirði, 28. desember 2020.
Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi.
|