Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
Breyting á deiliskipulagi Mjólkárvirkjunar. Breytingin felur í sér að reisa yfirbyggt tengivirki við Mjólkárvirkjun sem mun leysa hluta núverandi tengisvirkis af hólmi. Einnig er gert ráð fyrir nýjum jarðstreng frá tengivirkinu, þ.e. Mjólkárlínu 2.
Breyting á deiliskipulagi við Torfnes, Ísafirði. Breytingin felst í því að lóðarmörkum og byggingarreitum lóða A og B er breytt til að auka svigrúm fyrir fjórðu álmu hjúkrunarheimilisins Eyrar. Einnig gert ráð fyrir að auka svigrúm fyrir útivist og íþróttir við suðurmörk lóðar B.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Ísafirði, 2. maí 2023.
Helga Þuríður Magnúsdóttir, verkefnastjóri á umhverfis- og eignasviði.
|