Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 8/2022

Nr. 8/2022 23. nóvember 2022

AUGLÝSING
um innleiðingu vegna breytinga á viðauka II um staðlaðar matsaðferðir fyrir hávaða í tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1226 frá 21. desember 2020 um að koma á sameiginlegum matsaðferðum fyrir hávaða samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB, sbr. reglugerð nr. 1289/2022.

1. gr.

Breytingar á viðauka II öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 1289/2022 um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1000/2005 um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir sem birt er í B-deild Stjórnar­tíðinda: Breytingar á viðauka II um staðlaðar matsaðferðir fyrir hávaða í tilskipun framkvæmda­stjórnarinnar (ESB) 2021/1226 frá 21. desember 2020 um að koma á sameiginlegum matsaðferðum fyrir hávaða samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/49/EB, sem vísað er til í tölulið 32g XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2022, þann 4. febrúar 2022. Viðaukinn er birtur á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

 

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 15. tölul. 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unar­varnir, sbr. heimild í 2. mgr. 4. gr., sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 15/2005 um Stjórnartíðindi og Lögbirt­ingablað og öðlast þegar gildi.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 23. nóvember 2022.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

 


C deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2022