Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1124/2020

Nr. 1124/2020 17. nóvember 2020

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1253/2019 um stuðning við sauðfjárrækt.

1. gr.

5. málsl. 4. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar hljóðar svo: Kaupandi greiðslumarks nýtir greiðslu­mark frá og með 1. janúar á næsta almanaksári eftir kaupin.

 

2. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða er hljóðar svo:

Þrátt fyrir ákvæði 3. og 4. mgr. 12. gr. verður óselt greiðslumark sem var inn­leyst árin 2017 og 2018 sett á auka markað sem mun fara fram þann 1. desember 2020. Greiðslumarkið sem var innleyst á þessum tveimur árum mun verða til úthlutunar til samræmis við ákvæði reglu­gerðar­innar. Skilafrestur á beiðnum um kaup á þessum auka markaði er 3. desember 2020. Greiðslu­frestur er 10. desember.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum og búnaðarlögum nr. 70/1998, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. nóvember 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.


B deild - Útgáfud.: 20. nóvember 2020