Urðarbrunnur 84-92. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 17. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 84-92 við Urðarbrunn. Í breytingunni felst að í stað fimm íbúða raðhúss er heimilt að gera sex íbúða raðhús, endahús til vesturs (viðbót) er breytt í númer 92A, breidd byggingarreits hverrar íbúðar er mjókkaður úr 12 í 10 metra og breytast byggingarreitir samkvæmt því ásamt því að bílastæðum er fjölgað um tvö úr 10 í 12. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Grundarstígur 7. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, þann 28. nóvember 2019, breytingu á deiliskipulagi Bergstaðastrætisreits, reitur 1.184.0, vegna lóðarinnar nr. 7 við Grundarstíg. Í breytingunni felst að lóðinni er skipt upp í tvær lóðir Grundarstíg 7 og 7B, kvöð er á lóðinni nr. 7 um umferð, sem og heimild til lagningar fráveituheimæðar og annarra lagna, leyfilegt nýtingarhlutfall lóðanna tveggja er aukið, byggingarreitur bílskúrs á lóð 7B stækkar og heimilt er að fjarlægja bílskúr og reisa innan byggingarreitsins íbúðarhús, kjallara og hæð, allt að 120 fm. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Grettisgata 81. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 17. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.3 vegna lóðarinnar nr. 81 við Grettisgötu. Í breytingunni felst að heimilt er að gera tvo kvisti á norðurhlið hússins. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Lágholtsvegur 15. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, þann 29. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi Lýsisreits vegna lóðarinnar nr. 15 við Lágholtsveg. Í breytingunni felst að byggingarreitur er minnkaður og þinglýst kvöð um lagnir er sýnd. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 7. maí 2020.
Björn Axelsson.
|