Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 20. maí 2021 óverulega breytingu á deiliskipulagi fallvatnsvirkjunar við Múlaá í Garpsdal. Breytingin felst í tilfærslu á staðsetningu byggingarreits inntaksmannvirkis til suðurs innan deiliskipulagsmarka. Með breytingunni helst stærð framkvæmdasvæðis óbreytt en lögun þess er lítillega breytt við inntaksmannvirki en byggingarreitur vatnsinntaks færist neðar í landið. Við þessa breytingu styttist fallpípan niður í 2.060 m. Breytingin telst óveruleg með tilliti til gr. 5.8.2. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013. Ofangreind deiliskipulagsbreyting hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Reykhólum, 8. júní 2021.
Þórður Már Sigfússon skipulagsfulltrúi.
|