Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 19. mars 2020 eftirfarandi deiliskipulag:
Nýtt deiliskipulag Garðahrauns efra, fólkvangur. Markið deiliskipulagsins eru þau sömu og markmið friðlýsingarinnar; að byggja upp svæðið sem útivistarsvæði í þéttbýli þar sem jarðmyndanir, gróðurfar, fuglalíf og menningarminjar eru verndaðar. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir nýrri upplýstri göngu- og hjólaleið í gegnum svæðið og stikuðum leiðum. Fyrirhugaðir eru áningarstaðir og fræðsluskilti.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 19. mars 2020 eftirfarandi deiliskipulagsbreytingu:
Bæjargarður, breyting á deiliskipulagi Bæjargarðs. Breytingartillagan gerir ráð fyrir því að skilgreind sé 2ja metra há vallargirðing umhverfis gervigrasvöll. Heildarskipulag garðsins er uppfært m.t.t. fyrirliggjandi hönnunar.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 21. nóvember 2019 eftirfarandi deiliskipulagsbreytingu:
Bessastaðir, breyting á deiliskipulagi Bessastaða. Breytingartillagan gerir ráð fyrir því að öryggi og aðgengi ferðamanna og annarra sem sækja Bessastaði heim sé bætt. Gert er ráð fyrir að bílastæði norðan- og vestanmegin við kirkjuna verði flutt yfir á túnið norðan við núverandi heimreið og fjær forsetasetrinu. Gert er ráð fyrir 110 stæðum. Gert er ráð fyrir um 20 stæðum fyrir framan kirkjuna, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða. Gert er ráð fyrir stæðum fyrir hópferðabíla meðfram heimreið að norðanverðu. Öryggishlið færist til.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsstjóri Garðabæjar, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar, þann 14. mars 2020 eftirfarandi deiliskipulagsbreytingu:
Hagaflöt 20, óveruleg breyting á deiliskipulagi Flata. Breytingin gerir ráð fyrir því að brunagafl verði 15,58 m í staðinn fyrir 7,5 m.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Garðabæ, 15. maí 2020.
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri.
|