Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1746/2021

Nr. 1746/2021 29. desember 2021

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Ásahreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur hreppsnefnd Ásahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:

 

Deiliskipulagsbreyting, Lækjartún og Kálfholt.
Óveruleg breyting er gerð á deiliskipulagi fyrir svæðið Lækjartún og Kálfholt. Gert er ráð fyrir stærri lóð og breyttri legu lóðar. Ný lóð er afmörkuð, Kálfholt K4, sem stofnuð er úr landi Kálf­holts og sameinuð við Laufbrekku. Ekki er gerð breyting á skilmálum í greinargerð.
Samþykkt í hreppsnefnd 15. september 2021.

 

Deiliskipulagsbreyting, Steinás, L176490.
Óveruleg breyting er gerð á deiliskipulagi fyrir Steinás sem felur í sér að heimilt verði að stofna lóðir umhverfis byggingarreiti innan deiliskipulags.
Samþykkt í hreppsnefnd 15. desember 2021.

 

Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

 

Laugarvatni, 29. desember 2021.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Vigfús Þór Hróbjartsson.


B deild - Útgáfud.: 14. janúar 2022