1. gr.
Samkvæmt 6. tölul. 1. mgr. 7. gr. tollalaga nr. 88/2005, sbr. 28. gr. reglugerðar um ýmis tollfríðindi, nr. 630/2008, skulu aðflutningsgöld af stærri tækjum sem flutt eru til landsins tímabundið og uppfylla ekki skilyrði 4. tölul. 1. mgr. 7. gr. tollalaga nr. 88/2005 reiknuð af leiguverði í stað tollverðs.
Liggi leiguverð hópbifreiðar ekki fyrir skal ákvarða áætlaða leigu sem 1/60 hluta meðaltollverðs innfluttra hópbifreiða sem flokkast hafa í sama tollskrárnúmer síðastliðin þrjú ár fyrir hvern byrjaðan mánuð frá komu hópbifreiðar til landsins.
Aðflutningsgjöld af hópbifreiðum skulu innheimt við komu hópbifreiðar til landsins miðað við áætlaða tímalengd notkunar hennar hér á landi. Reynist notkunartíminn annar skal sú fjárhæð aðflutningsgjalda sem á milli ber innheimt við brottför bifreiðarinnar frá landinu.
2. gr.
Meðaltollverð fyrir eftirfarandi tollskrárnúmer er:
8702.1011 |
4.292.688 kr. |
8702.1019 |
7.844.198 kr. |
8702.1021 |
3.811.051 kr. |
8702.1029 |
8.714.169 kr. |
8702.1031 |
4.320.358 kr. |
8702.1039 |
19.084.071 kr. |
8702.1041 |
3.809.554 kr. |
8702.1049 |
12.007.519 kr. |
8702.2021 |
3.634.709 kr. |
8702.2039 |
8.974.164 kr. |
8702.2041 |
4.300.386 kr. |
8702.2049 |
11.448.113 kr. |
8702.3049 |
20.556.785 kr. |
8702.9031 |
2.397.098 kr. |
8702.9039 |
18.634.771 kr. |
8702.9081 |
4.101.365 kr. |
8702.9089 |
22.096.208 kr. |
8702.9099 |
9.516.631 kr. |
3. gr.
Auglýsing þessi sem birt er með stoð í 6. tölul. 1. mgr. 7. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 16. ágúst 2019.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
|