Úlfarsbraut 122-124. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 20. ágúst 2021, breytingu á skilmálum deiliskipulags útivistarsvæðis í Úlfarsárdal vegna lóðarinnar nr. 122-124 við Úlfarsbraut. Í breytingunni felst að settur er sér hæðarkóti fyrir stigahús vatnsrennibrautar. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Blikastaðavegur 2-8. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 21. júlí 2021, breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 2-8 við Blikastaðaveg. Í breytingunni felst að leiðrétta lóðastærð, bæta við tveimur byggingarreitum og auka byggingarmagn um 12.500 m². Þá eru bílastæðakröfur uppfærðar. Við útfærslu bygginga skal gæta að heildarsamræmi á lóðinni og ásýnd bygginga og brjóta upp lengd húshliða sem vísa að Vesturlandsvegi. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 25. ágúst 2021.
Björn Axelsson.
|