Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 672/2021

Nr. 672/2021 21. maí 2021

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Bláskógabyggð.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftir­farandi deiliskipulagsáætlanir:

 

Deiliskipulagsbreyting, Lækjarhvammur, lóð, L167917 og L216467.
Óveruleg breyting er gerð á deiliskipulagi frístundabyggðar Lækjarhvamms í Laugardal fyrir lóðirnar Lækjarhvammur, lóð, L167917 og L216467. Breytingin felur í sér stækkun lóða til norðurs fjær Grafará, breytingu á aðkomu að lóðunum og breytingu á skilmálum er varðar byggingarheimildir innan lóðanna.
Samþykkt í sveitarstjórn 29. mars 2021.

 

Deiliskipulagsbreyting, Brattholt, lóð, L193452 (Gullfosskaffi).
Gerð er breyting á deiliskipulagi Brattholts (Gullfosskaffi), sem felur í sér skilgreiningu bygg­ingarreita fyrir skolphreinsistöð og sorpgáma, stækkun á núverandi byggingarreit og sam­ein­ingu lóða auk þess sem gert er ráð fyrir nýrri lóð fyrir spennistöð.
Samþykkt í sveitarstjórn 21. janúar 2021.

 

Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

 

Laugarvatni, 21. maí 2021.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Vigfús Þór Hróbjartsson.


B deild - Útgáfud.: 8. júní 2021