Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 10/2020

Nr. 10/2020 9. janúar 2020

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 543/2013 um afhendingu og birtingu gagna á raforkumörkuðum og um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 714/2009.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 48 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sam­eiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017, frá 5. maí 2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samn­inginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 543/2013, frá 14. júní 2013, um afhendingu og birtingu gagna á raforkumörkuðum og um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópu­þingsins og ráðsins (ESB) nr. 714/2009.

Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

 

2. gr.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017 frá 5. maí 2017 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 11 frá 7. febrúar 2019, bls. 53 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 543/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 31/2017, 18. maí 2017, bls. 609.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 45. gr. raforkulaga nr. 65/2003 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. janúar 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Erla Sigríður Gestsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 14. janúar 2020