FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt:
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands, forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti og forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands er hér með gerð eftirfarandi breyting á forsetaúrskurði nr. 120/2018, um skiptingu starfa ráðherra, með síðari breytingum.
1. gr.
Ákvæði til bráðabirgða, sbr. forsetaúrskurð nr. 115/2020, fellur brott.
2. gr.
Forsetaúrskurður þessi öðlast gildi 17. október 2020.
Gjört á Bessastöðum, 16. október 2020.
Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)
Katrín Jakobsdóttir.
|