Samkvæmt tillögu forsætisráðherra hefur forseti Íslands gefið út svofellt bréf um frestun á fundum Alþingis:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 150. löggjafarþings, frá 4. september 2020 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 1. október 2020.
Gjört á Bessastöðum, 4. september 2020.
Guðni Th. Jóhannesson. (L. S.)
Alþingi samþykkti hinn 4. september 2020 ályktun um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Samkvæmt framangreindu umboði og með skírskotun til samþykkis Alþingis var fundum Alþingis, 150. löggjafarþings, frestað hinn 4. september 2020.
Forsætisráðuneytinu, 7. september 2020.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
|