Borgarstjórn Reykjavíkurborgar ákvað eftirfarandi á fundi sínum þann 5. nóvember 2019 og auglýsir þá ákvörðun með tilvísun í 2. mgr. 83. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Gjöld á gjaldskyldum bílastæðum verði eftirfarandi:
- 400 krónur á gjaldsvæði 1.
- 200 krónur á gjaldsvæði 2.
- 100 krónur á klst. fyrir fyrstu 2 klst. og 55 kr./klst. eftir það á gjaldsvæði 3.
- 200 krónur á gjaldsvæði 4.
Gjaldskrá þessi tekur gildi við birtingu. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1232/2018.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 23. desember 2019.
Dagur B. Eggertsson.
|